Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
-
Sprengimót Óðins 25.-26. september 2010
Almennt - miðvikudagur 8.sep.10 08:29 - HA - Lestrar 49 - Athugasemdir (0)
Sprengimót Óðins verður haldið 25.-26. september næstkomandi í Sundlaug Akureyrar. Mótið er sprettsundsmót og opið fyrir öll félög á landinu. Boðið er upp á mat og gistingu í Brekkuskóla.
-
ÍSÍ gefur út tvo nýja fræðslubæklinga
Almennt - þriðjudagur 7.sep.10 21:18 - HA - Lestrar 11 - Athugasemdir (0)ÍSÍ hefur nú gefið út tvo nýja fræðslubæklinga. Annars vegar er um að ræða bæklinginn „Íþróttir – félagslega hliðin“ og hins vegar bæklinginn „Íþróttir – foreldrar og börn“. Fyrrnefndi bæklingurinn fjallar um mikilvægi félagslegu hliðar íþróttastarfsins og hinn síðarnefndi um hlutverk foreldra hvað snertir íþróttaiðkun barna. Bæklingunum er ekki ætlað að vera tæmandi upplýsingar um efnið heldur leiðbeinandi þáttur sem vonandi leiðir til frekari umræðu um mikilvægi efnisins. Bæklingarnir verða gefnir út í netútgáfu til að byrja með og má nálgast þá á heimasíðu ÍSÍ .
-
Foreldrafundur þriðjudaginn 21. september
Almennt - mánudagur 6.sep.10 19:07 - HA - Lestrar 30 - Athugasemdir (0)Foreldrafundur til kynningar á vetrarstarfi Óðins verður haldinn þriðjudaginn 21. september kl. 20:00 í Teríu Íþróttahallarinnar. Gengið er inn um aðalinngang að austan. Við hvetjum foreldra allara barna í félaginu til að mæta og kynna sér starfið. Farið verður yfir skipulag sundæfinga, fyrirhuguð mót og aðra viðburði í vetur, fjáraflanir og fleira.
-
Æfingar hafnar - Æfingatafla allra hópa
Almennt - mánudagur 6.sep.10 09:54 - HA - Lestrar 16 - Athugasemdir (0)Æfingar eru nú hafnar hjá öllum hópum og æfingatafla allra hópa er komin á vefinn. Æfingatímar eru nánast óbreyttir frá síðasta sundári að því frátöldu að tími Höfrungar í Glerárlaug færast frá mánudegi til þriðjudags. Formlegar þrekæfingar útihópa í Akureyrarlaug eru ekki hafnar en sundmenn eiga að taka létt útihlaup fyrir æfingu. Verið er að vinna verkefnaskrá fyrir alla hópa þar sem fram koma mót, fjáraflanir og aðrir viðburður í starfi félagsins og kemur hún á netið innan tíðar.
-
Drengur fæddur!
Almennt - mánudagur 6.sep.10 09:51 - HA - Lestrar 46 - Athugasemdir (6)Sigfríð Einarsdóttir, þjálfari framtíðarhóps, varð mamma aðfararnótt sunnudags þegar flottur skrákur kom í heiminn. Sigfríð mun engu að síður sjá um æfingarnar í vetur en fær smá afleysingu þessar fyrstu vikur. Sigfríð eru hér með sendar bestu hamingjuóskir frá öllum í Óðni!
-
Æfingagjöld 2010-2011
Almennt - föstudagur 20.ágú.10 14:44 - HA - Lestrar 424 - Athugasemdir (0)Æfingagjöld hjá Óðni hafa verið óbreytt frá haustinu 2008 en nú verður ekki lengur vikist undan að hækka þau aðeins. Hækkunin er að jafnaði á bilinu 5-6%, sem er langt undir öllum almennum verðhækkunum á síðustu tveimur árum. Áfram er Óðinn með ein lægstu æfingagjöld sambærilegra félaga á landinu.
-
Bryndís synti í undanúrslitum
Almennt - þriðjudagur 17.ágú.10 23:09 - HA - Lestrar 141 - Athugasemdir (3)Bryndís Rún keppti í dag í 50 m flugsundi á ÓL ungmenna í Singapore. Hún synti sig inn í undanúrslit á tímanum 28,60 og bætti sig síðan um 7 sekúndubrot í undanúrslitasundinu sjálfu og endaði í 13. sæti. Fínn árangur það. Nú á hún eftir 100 m flugsundið þann 19. ágúst.
-
Æfingar hefjast
Almennt - mánudagur 16.ágú.10 22:50 - HA - Lestrar 94 - Athugasemdir (0)Vonandi hafa allir hafi notið sumarsis og nú fer að styttast í að sundæfingar hefjist á nýjan leik. Æfingar afrekshóps byrja þriðjudaginn 17. ágúst kl. 17:00. Fyrir sundæfingar eiga ALLIR að vera búnir að taka létt hlaup í 20-30 mín (3-5 km) með teygjum á eftir. Á þessar æfingar eru boðaðir allir sem fóru á AMÍ í vor en síðan verða frekari hrókeringar á milli hópa þegar Vald yfirþjálfari kemur til landsins aðra viku í september. Aðrir hópar byrja um mánaðamótin og verður það auglýst betur þegar nær dregur.
-
Bryndís búin með fyrstu grein
Almennt - sunnudagur 15.ágú.10 10:04 - HA - Lestrar 120 - Athugasemdir (2)Bryndís Rún hefur lokið keppni í fyrstu grein sinni á Ólympíuleikum ungmenna í Singapore. Hún synti 200 m fjórsund á 2:28:10 og komst ekki áfram, enda nokkuð frá sínum besta tíma. Á morgun er 100 m skriðsund og síðan 50 m flugsund á þriðjudaginn en það er væntanlega hennar sterkasta grein. Á vef ÍSÍ eru daglega settar inn nýjar fréttir frá íslenska hópnum sem gaman er að lesa.
-
Dóra Sigga sigraði í þríþrautarkeppni
Almennt - sunnudagur 15.ágú.10 09:34 - HA - Lestrar 194 - Athugasemdir (2)Í gær fór fram árleg þríþrautarkeppni á Laugum í Reykjadal. Keppt er í svokallaðri Ólympískri þríþraut sem er 1.500 m sund, 40 km hjólreiðar og 10 km hlaup. Dóra Sigga sundkona í afrekshópi Óðins sigraði í kvennaflokki á tímanum 2:53,14, sem mun vera með betri tímum í 9 ára sögu þrautarinnar.
Á næstunni
21.09.2010
Foreldrafundur þriðjudaginn 21. september
25.09.2010
Sprengimót Óðins 25.-26. september 2010
Heimsóknir
Í dag: 63
Samtals: 299458
Samtals: 299458


