Flýtilyklar
Fréttir
Bryndís Rún Hansen sundmaður Akureyrar

Í krókódílahópi, sem er eldri hópur félagsins fyrir fatlaða, fengu Guðný Halla Jónsdóttir og Vilhelm Hafþórsson viðurkenningar fyrir stigahæstu sund karla og kvenna. Í sama hópi fékk Jón Gunnar Halldórsson viðurkenningu fyrir ástundun og Breki Arnarsson fyrir framfarir. Í afrekshópi fengu viðurkenningu fyrir mestu bætingu á árinu Júlía Ýr Þorvaldsdóttir og Oddur Viðar Malmquist. Stigahæsta sund karla átti Einar Helgi Guðlaugsson og stigahæsta sund kvenna Bryndís Rún Hansen.
Í yngri hópum fengu viðurkenningu fyrir ástundun Sunna Brá Valsdóttir og Kristín Ása Sverrisdóttir og fyrir framfarir þau Sigrún Eva Valsdóttir og Birkir Leó Brynjarsson.
Glæsilegur árangur Bryndísar á árinu
Óðinn á í dag nokkra af sterkustu sundmönnum landsins og þar á meðal Bryndísi Rún Hansen. Árið 2009 er hennar besta til
þessa og hefur hún sýnt jafnar og stöðugar framfarir. Hæst á árinu bar þrjá Íslandsmeistaratitla hennar og þá er
hún tvöfaldur Íslandsmethafi. Hún var þannig Íslandsmeistari í 50 m flugsundi, bæði í 25 og 50 m laug, og bætti
Íslandsmetið í báðum greinum. Þá varð hún Íslandsmeistari í 100 m flugsundi í 25 m laug.
Á Evrópumeistaramóti unglinga komst hún annað árið í röð í úrslit og er önnur íslenska stúlkan frá upphafi sem náð hefur að synda í úrslitum á Evrópumeistaramóti. Alls keppti hún á þremur alþjóðlegum mótum erlendis á árinu og vann þar til verðlauna.
Á Aldursflokkameistaramóti Íslands varð hún fimmfaldur meistari. Auk Íslandsmetanna bætti hún einnig á árinu aldursflokkamet stúlkna í 50 og 100 m flugsundi. Akureyrarmet á árinu voru sem fyrr mörg. Er hún í dag handhafi 52 Akureyrarmeta í kvenna-, stúlkna-, telpna- og meyjaflokki. Bryndís hefur nú lokið verkefnum með unglingalandsliði og setur stefnuna á A landsliðsverkefni.
Til baka
Á næstunni
Heimsóknir
Samtals: 298871


