Sundfélagið Óðinn Akureyri

Sundfélagið Óðinn

Flýtilyklar

Fréttir

Lærdómsrík för á Fjölnismót

Almennt - sunnudagur 7.mar.10 22:27 - HA - Lestrar 415 - Athugasemdir (2)
Snævar Atli og Aron Bjarki með verðlaun sín.
Snævar Atli og Aron Bjarki með verðlaun sín.
Rúmlega 20 krakkar úr Óðni tóku um helgina þátt í Fjölnismótinu sem haldið var í Laugardalslauginni í Reykjavík. Krakkarnir voru á aldrinum 8-12 ára og mörg hver að taka þátt í sínu fyrsta móti utan heimahaganna. Ferðin gekk vel og krakkarnir stóðu sig með mikilli prýði en gist var á Farfuglaheimilinu þar sem fararstjórnarnir elduðu ofan í hópinn.

Dilla hefur marga fjöruna sopið þegar sundferðalög eru annars vegar og sendi þennan skemmtilega pistil:

Krakkarnir stóðust vel þá raun að sofa og borða utan heimilis og í sundlauginni lærðu þau nýja hluti og tókust á við sigra og ósigra eins og vera ber. Ósigrarnir voru að mínu mati fleiri en þeir þurftu að vera og fannst mér satt að segja lagabókstafurinn fá að vera túlkaður full nákvæmlega.

Hvað um það, Aron Bjarki Jónsson (9 ára) fékk silfur fyrir 50m. baksund hnokka og gull fyrir 50 metra bringu hnokka og í sama sundi fékk Snævar Atli Halldórsson (10 ára) silfrið, svo óhætt er að segja að Magnús Arturo og Árni Björn séu að eignast arftaka. Og svo náði A-hnátu sveitin gullinu í 200 metra fjórsundi þrátt fyrir að koma inn í 3. sæti þar sem hinar tvær sveitirnar voru dæmdar úr. Sveitina skipuðu „litlu“ stelpurnar mínar Ólöf Maren Bjarnadóttir og María Arnarsdóttir (báðar á 8. ári), ásamt Aldísi Huldu Eggertsdóttur ( 10 ára) og Arndísi Evu Erlingsdóttur( 10 ára).


Kveðja, Dilla.

Vormót Fjölnis 2010 - heildarúrslit (PDF)


Til baka


Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf