Sundfélagið Óðinn Akureyri

Sundfélagið Óðinn

Flýtilyklar

Fréttir

Súpuhittingur fyrir AMÍ-börn og -foreldra

Almennt - þriðjudagur 22.jún.10 21:00 - HA - Lestrar 343 - Athugasemdir (0)
Halla (mamma Birkis) og Alda (mamma Rakelar og Guðrúnar) hafa ákveðið að bjóða heim í súpu á þriðjudag 22. júní eftir æfingu hjá Afrekshóp ( kl 19 ca) að Krókeyrarnöf 16 (sjá kort ). Þetta er liður því að þjappa  AMÍ hópnum saman og hvað er betra en að hittast saman að snæðingi. Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir.

Við þurfum að vita ca fjölda vegna innkaupa og biðjum við því um að svarað sé til baka um þáttöku með nafni barns og svo sviga fyrir aftan fjölda sem fylgir með t.d. 2 ef báðir foreldrar.  Svar óskast ekki seinna en á hádegi mánudags á halla@sagacapital.is eða halldorarin@gmail.com

Súpan sem við ætlum að bjóða upp á er hin vinsæla mexíkanska kjúklingasúpa sem sló í gegn á AMÍ mótinu í fyrra.

Víð óskum einnig eftir

·          Ca 2 bökunarglöðum sem eru til í að koma með brauð með súpunni (erum þegar komin með einn bakara þannig að það verða 3)

·          Súpuskálar og skeiðar frá ca 2  heimilum

·          Sólstólar og borð frá einu heimili

Krókeyrarnöf 16 er ofan við götuna og innarlega (ekki vel merkt). Húsið er ómúrað og því í útliti eins og risastór frauðplastskubbur ;-)


Hlökkum til að sjá ykkur


Til baka


Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf