Flýtilyklar
Fréttir
Sjö aldurflokkameistaratitlar í gær!
Halldóra Sigríður Halldórsdóttir gaf tóninn strax í fyrstu grein dagsins með sigri í 100 m flugsundi 15-16 ára.
Eftir hádegið fylgdu síðan tveir meistaratitlar hjá bæði Nönnu Björk Barkardóttur og Kára Ármanssyni í flokki 12 ára og yngri. Í 100 m fjórsundi og 200 m bringusundi, samtals 4 titlar. Þau tvö hafa verið afar iðin við kolann á mótinu því í dag bætti Nanna enn einum AMÍ titili í safnið í 100 m bringusundi. Þar hlaut Kári silfur og að auki hefur hann unnið brons í 400 m skriðsundi og silfur í 200 m skriðsundi.
Í gær tók Freysteinn Viðar Viðarsson einnig silfur í 200 m skriðsundi 15-16 ára og silfur í 1500 m skriðsundi á fimmtudaginn á glæsilegum tíma.
Elín Erla Káradóttir er þegar komin með tvö silfur í flokki 15-16 ára. Í 200 m bringusundi í gær og 100 m bringusundi í morgun. Í sama sundi tók Júlía Ýr Þorvaldsdóttir bronsið.
Kristín Ása Sverrisdóttir tók brons í 200 m bringusundi í gær og einnig silfur í 100 m bringusundi 12 ára og yngri í morgun.
Elísa Ýrr Erlendsdóttir jók svo við verðlaunasafn Óðins í morgun með bronsi í 200 m baksundi í sama aldursflokki.
Þá má ekki gleyma gullverðlaunum Tómasar Leó Halldórssonar í 200 m skriðsundi og silfrri í 50 m skriðsundi í gær en hann keppir í flokki 19 ára og eldri.
Boðsund:
Í boðsundum gærdagsins, 4x100 m skriðsundi, kræktu sveitir Óðins í tvo meistaratitla í kvennaflokkum.
Í flokki 12 ára og yngri skipuðu sveitina Nanna Björk Barkardóttir, Bryndís Bolladóttir, Elísa Ýrr Erlendsdóttir og Kristín Ása Sverrisdóttir.
Í flokki 15-16 ára skipuðu sveitina þær Halldóra Sigríður Halldórsdóttir, Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir, Karen Konráðsdóttir og Elín Erla Káradóttir.
Til baka
Á næstunni
Heimsóknir
Samtals: 299165


