Flýtilyklar
Fréttir
Æsispennandi stigakeppni á AMI
Nanna Björk Barkardóttir vann til tveggja aldursflokkameistaratitla í dag í flokki 12 ára og yngri. Fyrir hádegi í 100 m bringusundi og eftir hádegi í 200 m fjórsundi.
Freysteinn Viðar Viðarsson landaði meistaratitli í 400 m skriðsundi 15-16 ára eftir hádegið og þá fékk Kári Ármannsson silfur í 200 m fjórsundi 12 ára og yngri og Elín Erla Káradóttir brons í sömu grein hjá 15-16 ára.
Boðsundin
Líkt og í gær vann Óðinn til tveggja meistaratitla í boðsundum dagsins, þar sem 4x100 m fjórsund var á dagskrá.
Sveit 12 ára og yngri stelpna hafði slíka yfirburði að stelpurnar hefðu getað verið búnar í sturtu þegar næstu komu í mark, eða svona nánast :) Sveitina skipuðu Elísa Ýrr Erlendsdóttir, Kristín Ása Sverrisdóttir, Nanna Björk Barkardóttir og Bryndís Bolladóttir.
Sveit 15-16 ára vann líkt og í gær eftir æsispennadi keppni við Ægi og sveitina skipuðu Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir, Júlía Ýr Þorvaldsdóttir, Halldóra Sigríður Halldórsdóttir og Elín Erla Káradóttir.
Til baka
Á næstunni
Heimsóknir
Samtals: 299165


