Sundfélagið Óðinn Akureyri

Sundfélagið Óðinn

Flýtilyklar

Fréttir

Óðinn endaði í 4. sæti á AMÍ 2010 - Annar besti árangur frá upphafi

Almennt - sunnudagur 27.jún.10 23:09 - HA - Lestrar 408 - Athugasemdir (2)
Aldursflokkameistaramóti Íslands 2010 lauk í Hafnarfirði í kvöld. Óðinn endaði í 4. sæti í stigakeppni félaga með 590 stig, tveimur stigum meira en ÍA. Ægir sigraði nokkuð örugglega , ÍRB varð í 2. sæti og SH í því 3. Þetta er annar besti árangur Óðins á AMÍ frá upphafi. Þá varð Nanna Björk Barkardóttir stigahæsta meyjan, þ.e.  í flokki 12 ára og yngri.

Þó nokkuð bættist við í verðlaunasafnið í dag, en aðeins einn meistaratitill, í boðsundi 15-16 ára. Þá vann Tómas Leó Halldórsson gull í 100 m skriðsundi 19 ára og eldri. Sá aldursflokkur keppir ekki til stiga á mótinu. Aðrir verðlaunahafar dagsins voru þessir.

17-18 ára:
Erla Hrönn Unnsteinsdóttir brons í 100 m baksundi.

15-16 ára:
Halldóra Sigríður Halldórsdóttir silfur í 100 m skriðsundi.
Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir silfur í 100 m baksundi
Elín Erla Káradóttir brons í  400 m fjórsundi
Oddur Viðar Malmquist brons í  200 m flugsundi

12 ára og yngri:
Nanna Björk Barkardóttir brons í 200 m flugsundi, silfur í 400 m fjórsundi.
Elísa Ýrr Erlendsdóttir silfur í 100 m baksundi
Kári Ármannsson brons í 400 m fjórsundi.

Boðsund, 4x50 skriðsund
15-16 ára gullverðlaun: 
Halldóra Sigríður Halldórsdóttir, Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir, Elín Erla Káradóttir og Júlía Ýr Þorvaldsdóttir.

12 ára og yngri silfur:
Elísa Ýrr Erlendsdóttir, Kristín Ása Sverrisdóttir, Nanna Björk Barkardóttir og  Bryndís Bolladóttir.

Nánari samantekt með úrslitum af öllu mótinu og Akureyrarmetum kemur eftir helgina, sem og myndir.


Til baka


Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf