Flýtilyklar
Fréttir
Vilhelm öflugur á Opna þýska
Almennt - miðvikudagur 30.jún.10 16:43 - HA - Lestrar 314 - Athugasemdir (2)
Vilhelm Hafþórsson stóð sig með miklum sóma á Opna þýska meistaramótinu í sundi, en þangað fór hann með
landsliði Íþróttasambands fatlaðra, eins og fram hefur komið. Vann hann til þriggja verðlauna á mótinu.
1. sæti 200 skrið 2:23,24
3. sæti 100 skrið 1:02,94
3. sæti 200 fjór 2:52,05
Hann náði einnig í úrslit í 50 bringu.
Jón Heiðar Jónsson þjálfari Vilhelms segir engan vafa að Vilhelm sé mikið efni. „Hann hefur náð afar góðum árangri
í sundinu á tiltölulega stuttum tima og ferillinn því verið talsvert brattur, ef svo má segja. Hann er þegar orðinn meðal okkar öflugustu
sundmanna, var nú að taka þátt í sínu fyrsta stórmóti erlendis og hefur að mínu mati alla burði til að ná enn lengra
með réttum æfingum og umgjörð, segir Jón Heiðar.
Til baka
Á næstunni
21.09.2010
Foreldrafundur þriðjudaginn 21. september
25.09.2010
Sprengimót Óðins 25.-26. september 2010
Heimsóknir
Í dag: 63
Samtals: 299458
Samtals: 299458


