Sundfélagið Óðinn Akureyri

Sundfélagið Óðinn

Flýtilyklar

Fréttir

Samantekt frá AMÍ 2010

Almennt - miðvikudagur 30.jún.10 21:03 - HA - Lestrar 384 - Athugasemdir (2)
Hin ofursvala boðsundssveit meyja. Elísa Ýrr, Nanna Björk, Kristín Ása og Bryndís.
Hin ofursvala boðsundssveit meyja. Elísa Ýrr, Nanna Björk, Kristín Ása og Bryndís.
Eins og fram hefur komið varð Óðinn í 4. sæti stigakeppni AMÍ sem lauk á sunnudaginn í Hafnarfirði. Hér kemur smá yfirlit um árangurinn.

Óðinn vann til 34 verðlauna í einstaklingsgreinum, þar af 11 gull. Í boðsundum unnum við til 6 verðlauna, þar af 5 gull.

Níu Akureyrarmet féllu á mótinu, þar af tvö í boðsundum. Nanna Björk Barkardóttir setti tvö met í meyjaflokki, í 400 fjórsundi á tímanum  5:54.38 og 200 m flugsundi á 3:11.29. Hún var einnig stigahæsta meyja mótsins. Kári Ármansson setti met í sveinaflokki þegar hann synti 100 m fjórsund á tímanum 1:20.17  

Erla  Hrönn Unnsteinsdóttir bætti Akureyrarmet stúlkna og kvenna í 200 m baksundi á tímanum 2:26,55 og Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir bætti einnig Akureyrarmet stúlkna og kvenna  í 100 m baksundi er hún synti á tímanum 1:07,77. Þá setti stúlknasveitin stúlkna- og kvennamet í 4x100 m fjórsundi á tímanum 4:33.68. Sveitina skipuðu þær Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir, Júlía Ýr Þorvaldsdóttir, Halldóra Sigríður Halldórsdóttir og Elín Erla Káradóttir.

Verðlaunahafar Óðins á mótinu voru annars þessir:

19 ára og eldri:
Tómas Leó Halldórsson:
Gull 100 m skriðsund, 200 m skriðsund
Silfur: 50 m skriðsund

17-18 ára:
Erla Hrönn Unnsteinsdóttir
Silfur 200 m baksund
Brons 100 m baksund

15-16 ára:

Freysteinn Viðar Viðarsson:
Gull 400 m skriðsund
Silfur 200 m skriðsund, 1.500 m skriðsund

Halldóra Sigríður Halldórsdóttir:
Gull 100 m flugsund
Silfur í 100 m skriðsund

Elín Erla Káradóttir:
Silfur 100 m bringusund, 200 m bringusund
Brons: 200 m fjórsund, 400 m fjórsund

Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir
Silfur 100 m baksund

Oddur Viðar Malmquist
Brons 200 m flugsund

Júlía Ýr Þorvaldsdóttir:
Brons 100 m bringusund

12 ára og yngri:

Nanna Björk Barkardóttir:
Gull 100 m bringusund, 200 m bringusund, 100 m fjórsund, 200 m fjórsund
Silfur 400 m fjórsund
Brons  200 m flugsund

Kári Ármannsson
Gull: 100 m fjórsund 200 m bringusund
Silfur 200 m fjórsund, 100 m bringusund, 200 m skriðsund
Brons 400 m fjórsundi, 400 m skriðsund

Kristín Ása Sverrisdóttir
Silfur 100 m bringusund
Brons 200 m bringusundi

Elísa Ýrr Erlendsdóttir:
Silfur 100 m baksund
Brons 200 m baksund

Boðsund

15-16 ára
Gull í 4x100 m skriðsundi, 4x100 m fjórsundi og 4x50 m skriðsundi:
Karen Konráðsdóttir, Halldóra Sigríður Halldórsdóttir, Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir, Elín Erla Káradóttir og Júlía Ýr Þorvaldsdóttir.

12 ára og yngri:
Gull í 4x100 m skriðsundi og 4x100 m fjórsundi. Silfur 4x50 m skriðsund:
Elísa Ýrr Erlendsdóttir, Kristín Ása Sverrisdóttir, Nanna Björk Barkardóttir og  Bryndís Bolladóttir.

Heildarúrslit frá AMÍ 2010


Til baka


Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf