Flýtilyklar
Fréttir
Sund á Unglingalandsmóti UMFÍ um verslunarmannahelgina í Borgarnesi
Hvað er Unglingalandsmót
Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin er árlega um verslunarmannahelgina. Dagskráin er afar fjölbreytt, keppt er í íþróttum frá morgni til kvölds og fjöldi verkefna eru í boði fyrir alla fjölskylduna, leiktæki, kvöldvökur, flugeldasýning ofl. ofl.
Keppnisgreinar
Allir á aldrinum 11-18 ára geta keppt á Unglingalandsmóti og um er að ræða 10 keppnisgreinar.
Þær eru: Dans, frjálsar, glíma, golf, hestaíþróttir, knattspyrna, körfubolti, motocross, skák og sund.
Keppendur velja sér keppnisgreinar, eina eða fleiri, alveg eftir því hver og einn vill. Það er bara eitt keppnisgjald, óháð fjölda keppnisgreina. Keppnisgjald mótsins er kr. 6.000. Frítt er á tjaldstæðin, frítt er í öll leiktækin, á kvöldvökur og á alla dagskrá sem í boði er.
Sund
Sundkeppnin verður án efa skemmtileg eins og á undanförnum mótum. Það geta allir tekið þátt í þessari keppni og er sundfólk hvatt til þátttöku. Sundkeppnin fer fram í Borgarnesi en þar er öll aðstaða hin glæsilegasta. Keppt verður á laugardegi og sunnudegi.
Sundmenn sem fara eru á eigin vegum, það er þeir eru ekki á vegum Óðins. Skráningu lýkur á miðnætti föstudaginn 23. Júlí. Keppendur skrá sig sem ÍBA aðilar.
UFA og UMSE hafa verið með afmarkað svæði á tjaldsvæðinu.
Oddur, Júlía og Birkir Leó stefna á að fara á þetta mót og ef til vill einhverjir fleiri.
Frekari upplýsingar
Heimasíða mótsins er www.ulm.isTil baka
Á næstunni
Heimsóknir
Samtals: 299166


