Flýtilyklar
Lög Sundfélagsins
1. gr. Félagið heitir Sundfélagið Óðinn, heimili þess og varnarþing er á Akureyri.
2. gr. Tilgangur félagsins er að gefa félögum þess möguleika á íþróttaiðkun innan ramma ÍBA í samræmi við gildandi reglur á hverjum tíma. Sérstaklega leggur félagið áherslu á sundíþróttir á vegum félagsins.
3. gr. Rétt til að vera í félaginu eiga allir sem skilað hafa skriflegri inntökubeiðni er hlotið hefur samþykki stjórnar eða félagsfundar. Félagið getur kjörið heiðursfélaga þá sem unnið hafa félaginu eða íþróttahreyfingunni um lengri tíma. Til slíkrar útnefningar þarf samþykki félagsfundar.
4. gr. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að:
1. Halda uppi reglubundnum æfingum.
2. Gefa meðlimum félagsins kost á að taka þátt í mótum og keppnum á vegum félagsins.
3. Að vinna að því að skapa sem hagstæðustu aðstæður til sundiðkunar fyrir félagsmenn.
4. Halda uppi fræðslustarfsemi um sund og aðrar greinar eftir því sem félagið ákvarðar hverju sinni.
5. gr. Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum í stjórn kosnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnin skal starfa í samræmi við lög þessi, samþykktir aðalfundar og félagsfundar eftir því sem við á.
Stjórn félagsins skal skipuð þannig:
a) Formanni er hafi umsjón með starfi félagsins, boði til stjórnarfunda, stýri þeim og komi fram út á við fyrir hönd félagsins.
b) Varaformanni er taki við starfsskyldum formanns í forföllum.
c) Ritara er færi gjörðabók félagsins og annist varðveislu bréfa.
d) Gjaldkeri er færi bókhald og annist fjárreiðu félagsins–annist félagatal og innheimtu æfinga– og félagsgjalda.
e) 3. Meðstjórnanda og spjaldskrárritara er annast muni félagsins og aðstoða gjaldkera við félagatal og skráningu þátttakenda í æfingum félagsins.
Einungis félagsstjórn getur skuldbundið félagið fjárhagslega innan þess ramma sem aðalfundur eða félagsfundir hafa markað hverju sinni.
Reikningsár félagsins skal miðast við 1. janúar til 31. desember.
6. gr. Aðalfundur félagsins skal haldinn ár hvert eigi síðar en 10. apríl. Reikningsárið er næsta almanaksár þar á undan. Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
1. Setning–kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
4. Fjárhagsáætlun og starfsáætlun næsta árs.
5. Ákvörðun árgjalda.
6. Lagabreytingar.
7. Málefni einstakra deilda félagsins
8. Kosningar.
a) Formaður kosinn sérstaklega
b) 6 menn í stjórn.
c) 2 félagslegir skoðunarmenn.
d) Formenn deilda.
9. Önnur mál.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir fullgildir meðlimir félagsins 14 ára og eldri. Til aðalfundar skal boðað með auglýsingu með minnst viku fyrirvara.
Aðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað.
7. gr. Samkvæmt sérstakri reglugerð skiptist félagið í deildir í samræmi við Íþróttagreinar. Stjórn skal starfa í hverri deild.
Hana skipa:
1. Formaður
2. Tveir meðstjórnendur
Stjórn deilda skal starfa í hverri deild.
Einstakar deildir geta haft sjálfstæðan fjárhag, en uppgjör þeirra komi til skila á aðalfundi með sama hætti og aðaluppgjör félagsins.
8. gr. Stjórn félagsins ákvarðar æfingargjöld hverju sinni. Stjórn félagsins velur fulltrúa á þing ÍBA. Stjórn félagsins ræður starfsmenn til einstakra verkefna eftir því sem fjárhagur leyfir og stafsáætlun gerir ráð fyrir. Skal gerður skriflegur ráðningarsamningur við alla starfsmenn sem taka að sér langtímaverkefni s.s. þjálfun og skal sá samningur skilgreina starfsskyldur og valdssvið starfsmanna eftir því sem við á.
9. gr. Hætti félagið starfi eða verði slitið með samþykkt aðalfundar ber að afhenda ÍBA allar eigur þess og gögn til varðveislu. Verði félagið ekki endurreist innan 10 ára falla eignir þess –án skuldbindinga– undir ÍBA.
10. gr. Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf lagabreyting að hljóta samþykki 2/3 hluta fundarmanna.
Lög þessi öðlast þegar gildi og falla þar með úr gildi öll eldri lög félagsins.
Lög þessi voru upphaflega samþykkt á aðafundi 18. október 1989, með breytingum á 6. gr. á aðalfundi 4. nóvember 1993 og aftur breytingum á 6. gr. 15. mars 2000. Enn voru gerðar breytingar á 6. gr. og einnig 8. gr. á aðalfundi 10. maí 2001 með breytingum á 5. gr. og 6. gr. lið b) og c) á aðalfundi 28. apríl 2003 og í núverandi mynd með breytingum á 5. gr. og 8. gr. lið b) og c) á aðalfundi 29.04.2004.
Akureyri 29. apríl 2004
Á næstunni
Heimsóknir
Samtals: 299165


