Sundfélagið Óðinn Akureyri

Sundfélagið Óðinn

Flýtilyklar

Garpar

Um garpasund:
Hjá Sundfélaginu Óðni er hægt að stunda sundæfingar fyrir fullorðið fólk með tilsögn þjálfara. Allir 20 ára og eldri sem vilja stunda sund markvisst og fá leiðbeiningar og stunda líkamsrækt í hópi skemmtilegs fólks eru hjartanlega velkomnir.

Garpasund er ekki bara líkamsrækt, heldur er rækt lögð við félagslega þáttinn og hittast sundmenn hópsins u.þ.b. einu sinni í mánuði og snæða saman laugardags "brunch". Þeir hittast og tvisvar á ári í heljarinnar fjölskyldu-grillveislum og setjast einnig saman í desember og snæða gæðamat.

Keppnir eru fyrir þá sem það vilja; á hverju ári er Íslandsmeistaramót Garpa og nokkrir frá Íslandi fara gjarnan til Norðurlanda til keppni í Norðurlandameistaramóti Garpa. Annaðhvert ár er Evrópumeistaramót og á milli þeirra Heimsmeistaramót, en fáir Íslendingar sækja þessi mót. Þetta er hinsvegar gríðarlega vinsæl íþrótt meðal fullorðinna um allan heim og eru mörgþúsund iðkendur um allan heim.

Æfingar:
Þjálfari Garpa er Gunnar Viðar Eiríksson.
Netfang: karen@vma.is Sími: 8637549/4627546
Æfingar eru á mánudögum og fimmtudögum kl. 19:00 og laugardögum kl. 11:00
Æfingargjöldin:
2000 fyrir 2x og 2500 fyrir 3x í viku. Reikninganúmerið er: 162-05-262909, kt. 2111614779.

Mót framundan:

Nordic Masters 2010 - Norðurlandameistaramót garpa fer fram í Kristiansund í Noregi 2. október. Nánari upplýsingar

Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf