Sundfélagið Óðinn Akureyri

Sundfélagið Óðinn

Flýtilyklar

Almennar upplýsingar

AMÍ 2009 verður haldið á Akureyri dagana 25.-28. júní.

Keppt verður í Sundlaug Akureyrar við Þingvallastræti.

Boðið verður upp á gistingu í Brekkuskóla á Akureyri. Skólinn er staðsettur við hlið sundlaugarinnar í um 20 metra fjarlægð. Eins og venja er með sundmót þarf fólk að hafa með sér dýnur og annan viðlegubúnað.

Matur verður framreiddur í Brekkuskóla. Lokahófið verður í Íþóttahöllinni við Skólastíg sem einnig er mjög nálægt skóla og sundlaug eða í um 20 metra fjarlægð.

Verð:
Við tökum þátt í að létta undir í kreppunni þannig að þrátt fyrir verðhækkanir á aðföngum þá höldum við óbreyttu verði á milli ára. Pakki sem inniheldur gistingu og mat frá og með miðvikudagskvöldi 24. júní, til og með mánudagsmorgni 29. júní, lokahóf og hinn sívinsæla AMÍ bol kostar krónur 17.500 á mann.

Greiðist inn á reikning: 1145-26-80180 kt. 580180-0519 fyrir miðvikudaginn 24. júní.

Skráning í mat og gistingu
Skráningar vegna gistingar skulu berast Óðni, í tölvupósti á netfangið odinn@odinn.is fyrir 15. júní. Við getum ekki ábyrgst að verða við skráningum sem berast síðar, né heldur endurgreiðslu á skráningum eftir þennan tíma.

Vinsamlegast athugið að matar- og gistipassar verða afhentir frá 16:00 - 19:00 í Brekkuskóla miðvikudaginn 24. júní og þá aðeins gegn framvísun á staðfestingu á greiðslu (til dæmis útprentun úr heimabanka).

Spurningum varðandi AMÍ-pakkann skal beina á odinn@odinn.is, eða í síma 864-6403 (Ásta) eða 861 4331 (Halldór).

Skráning sundmanna
Skráning í greinar er hjá Sundsambandi Íslands sundsamband@sundsamband.is. Skráningarfrestur er til miðnættis 14. júní. Sjá nánar á heimasíðu SSÍ

Það verður hægt að fá ýmsar upplýsingar um mótið hér heimasíðunni þegar nær dregur mótinu og einnig er fólki bent á að skoða heimasíðu Akureyrar, en þar er meðal annars hægt að sjá hvað verður í boði til afþreyingar þessa daga.
 
Munið það er alltaf gott veður í Eyjafirði. Mætum með bros í hjarta svo við getum átt saman ánægjulega daga á Akureyri.

Með sundkveðjum, f.h. Óðins.
Ásta Birgisdóttir formaður

Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf