Sundfélagið Óðinn Akureyri

Sundfélagið Óðinn

Flýtilyklar

Reglugerð um AMÍ og greinaröðun

Greinaröðun:

Greinar á AMÍ 2009 (PDF)

Reglugerð AMÍ 2009:

1.grein
AMÍ er annars vegar Aldursflokkameistaramót Íslands – AMÍ I og hinsvegar Aldursflokkamót Íslands – AMÍ II.  AMÍ skal haldið árlega að jafnaði seinni hluta júnímánaðar.

2. grein
Mótið skal haldið í 25 metra laug.  Stjórn SSÍ getur breytt fjölda keppnisdaga ef þarf.  Stjórn SSÍ tilkynnir skipulag mótsins og staðsetningu með minnst tveggja mánaða fyrirvara.  Þá daga sem mótið fer fram er óheimilt að stofna til annarrar sundkeppni meðal sambandsaðila SSÍ.

3. grein
Lágmörk fyrir AMÍ eru ákveðin af stjórn SSÍ að fenginni tillögu frá ÍSS, Íslenska sundþjálfarasambandinu.  ÍSS skal skila tillögum sínum um lágmörk á AMÍ ekki síðar en í nóvember fyrir næsta AMÍ á eftir.
Lið sem eiga færri keppendur en 4 mega sækja um að bæta við keppendum óháð lágmörkum á AMÍ þó þannig að heildarfjöldi verði ekki fleiri en fjórir.

4. grein
AMÍ er aldursskipt mót í sundi. 
Aldursflokkarnir eru:
a) Karlar og konur 17 – 18 ára. Sameiginleg lágmörk.
b) Piltar og stúlkur 15 – 16 ára eldri. Sameiginleg lágmörk.
c) Drengir og telpur 13 - 13 – 14 ára yngri  Sameiginleg lágmörk
d) Sveinar og meyjar 12 ára og yngri. Sérstök lágmörk fyrir 12 ára og önnur fyrir 11 ára en sameiginleg verðlaun.

Keppa skal í undanrásum og úrslitum í flokkum samkvæmt ofangreindum a,b og c liðum en í beinum úrslitum í aldursflokki samkvæmt d lið.

5. grein
AMÍ I og II skulu haldin samhliða.  Undanrásir á AMÍ eru að jafnaði að morgni og úrslit að kveldi.  Í flokki sveina og meyja eru bein úrslit að morgni og kveldi og skal greinum úr þeim flokkum dreift bæði í undanrásahluta og úrslitahluta annarra aldursflokka.
Í úrslitum í flokki pilta, stúlkna, drengja og telpna keppa 5 – 8 bestu úr viðkomandi grein frá undanrásum.  Fer fjöldi sundfólks í úrslitariðil eftir fjölda brauta í þeirri laug sem keppt er í hverju sinni.

6. grein
Mótið er stigakeppni félaga.  Sundfólk tekur stig fyrir sín félög í undanrásum í flokki karla og kvenna, pilta og stúlkna, drengja og telpna og beinum úrslitum í flokki sveina og meyja.  Stig eru gefin miðað við sætaröð og reiknuð þannig að fyrir fyrsta sæti eru gefin 12 stig, fyrir annað sætið 10 stig, fyrir þriðja sætið 8 stig, þá 6 stig, 5 stig, 4 stig, 3 stig, 2 stig,  og 1 stig þannig að 9 bestu í greininni hljóti stig.
Stigagjöf fyrir boðsund er samsskonar.  Einungis ein sveit frá hverju félagi getur tekið stig í hverjum aldursflokki.  Sú sveit skal merkt A-sveit.  Geri boðsundsveit ógilt í grein í undanrásum er sundfólki úr þeirri sveit óheimilt að taka þátt í boðsundi sömu greinar í úrslitum.
Verði félög jöfn að stigum í heildarstigakeppni félaga skulu stig gefin fyrir boðsund ráða sæti félagana. Verði félög þá ennþá jöfn að stigum skal hlutkesti ráða röð félaga.   
    
7. grein
Úrslitahluti er einstaklingskeppni og skal sigurvegri í hverri grein hljóta sæmdartitilinn Aldursflokkameistari Íslands í þeirri grein.
Afreksverðlaun einstaklinga eru veitt þeim keppendum sem ná bestum samanlögðum árangri í tveimur greinum í úrslitahluta, samkvæmt stigatöflu FINA.  Í flokki 17-18 ára og í flokki 15-16 ára eru valdar tvær stigahæstu greinar einstaklinga í lok móts, en í flokki 13-14 ára eru teknar þrjár stigahæstu greinarnar.
Afreksverðlaun einstaklinga eru veitt þeim keppendum sem ná bestum samanlögðum árangri í þremur greinum í flokki sveina og meyjaI, samkvæmt stigatöflu FINA. Stig verða reiknuð fyrir sundmenn 12 ára og yngri fyrir 200 m fjórsund, 400 m skriðsund ásamt annarri grein.
Á mótinu eru einnig valin efnilegasti sundmaður og efnilegasta sundkona ársins 18 ára og yngri á milli AMÍ móta. 

8. grein
Verðlaunapeninga skal veita m/v aldursflokka fyrir fyrstu þrjú sætin í úrslitum hverrar greinar auk þess skulu allir keppendur í meyja og sveinaflokkum hljóta sérstaka viðurkenningu fyrir þátttöku.

9. grein.
Stjórn SSÍ gefur út greinaröð mótsins minnst tveimur mánuðum áður en mótið hefst í samráði við mótshaldara.  Verði afgerandi breytingar á greinarröðun frá árinu á undan skal hún hafa samráð við ÍSS og tilkynna sambandsaðilum sínum breytingarnar sérstaklega.

10. grein
Þátttökurétt hefur allt sundfólk sem skráð er í íslensk sundfélög og hafa náð lágmörkum þeim sem um getur í 3. grein hér að ofan.  Að auki eiga íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis skráðir í félög erlendis þátttökurétt á mótinu í samræmi við reglur ÍSÍ og SSÍ um keppnis- og þátttökurétt.  Erlend sundfélög geta ekki tekið þátt í stigakeppni félaga.
Hver keppnandi getur tekið þátt í 8 greinum. Í boðsundi má synda upp fyrir sig í flokki að því tilskyldu að boðsundssveitir séu skipaðir tveimur einstaklingum úr réttum aldursflokki hið minnsta.

11. grein
Tækni- og starfsmannafundi skal halda samkvæmt gildandi reglum SSÍ

 

Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf