Sundfélagið Óðinn Akureyri

Sundfélagið Óðinn

Flýtilyklar

Fjáraflanir

Fjáraflanir eru nauðsynlegur þáttur í rekstri íþróttafélags og hluti af félagsstarfinu. Þær fjáraflanir sem sundfólk Óðins sinnir eru þrennskonar.

a) Fjáraflanir þar sem afraksturinn rennur óskiptur til þeirra sundmanna sem taka þátt. T.d. sala á wc-pappír.

b) Sameiginlegar fjáraflanir þar sem afraksturinn rennur til félagsins og nýtist til niðurgreiðslu á ferðakostnaði. T.d. sólarhringssund og kleinusteiking.

c) Fjáraflanir tengdar sérstökum verkefnum sem framundan eru, t.d. utanlandsferðum.

Nánar um einstakar fjáraflanir:

WC-pappír
Eldri hópar félagsins hafa síðustu misseri verið að selja WC-pappír sem fjáröflun og gengið vel. Þetta er einstaklingssöfnun og sér hver og einn um að halda utan um ágóðann af sinni sölu. Þannig greiðir fólk félaginu aðeins kostnaðarverð fyririr pappírinn en sér sjálft um að passa  upp á ágóðann og getur notað hann til að greiða fyrir ferðir. Greiða verður fyrir pappírinn áður en hann fæst afhentur þannig að koma þarf með greiðslukvittun úr heimabanka um leið og pappírinn er sóttur. Kostnaðarverð (það sem greiða þarf félaginu) fyrir hverja pakkningu (48 rúllur) er 5.000 kr. en útsöluverð 6.200 kr. Þannig er ágóðinn af hverri pakkningu 1.200 kr. Þetta er góð fjáröflun og því fólk er farið að þekkja þennan góða pappír og sækist eftir að kaupa hann frekar en það sem fæst í búðum. Þeir sem eru duglegir geta jafnvel fjármagnað megnið af sínum ferðum með þessu móti.

Sigríður Einarsdóttir, gjaldkeri Óðins, heldur utan um söluna.

Sigríður Einarsdóttir
Borgarsíðu 23, Ak.
Sími: 616-8768 odinn@odinn.is .

Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf