Flýtilyklar
Hópalýsingar
Skjaldbökur:
4 og 5 ára
Þetta er fyrsti hópurinn okkar. Vatnsaðlögun - unnið að því að börnunum líði vel í vatninu og læri að bjarga
sér.
Straumlína - spyrna frá bakka og renna - spyrna frá bakka með kork - flot - fara í kaf og blása frá sér -öndun (blása í
vatnið) - hoppa út í laug - skriðsundsfótatök á maga og baki - æfa hreyfingu skriðsundshandataksins omfl.
Leikir, leikir, leikir JJJ
Þjálfarar: Dýrleif Skjóldal og Steinar Logi Rúnarsson.
Mánaðargjald: 5.000 kr.-
Sæhestar:
6 og 7 ára
Straumlínulögun -spyrna frá bakka og renna- hopp af bakka (stunga) - fara í kaf og sækja hlut - flot á maga og baki - skriðsunds- og
baksundsfótatök - skriðsundshandatakið - baksundshandatakið - öndun í skriðsundi- lega í vatninu.
Leikir, leikir, leikir JJJ
Þjálfarar Akureyrarlaug: Unnur Kristjánsdóttir og Anna Fanney Stefánsdóttir.
Þjálfarar Glerárlaug: Dýrleif Skjóldal, Steinar Logi Rúnarsson, Hafdís Sigurðardóttir.
Mánaðargjald: 5.000 kr.-
Gullfiskar:
8 - 10 ára
Skriðsund, baksund, flugsundsfótatök.
Öndun í skriðsundi, flot, köfun, hopp og stunga, straumlínulögun, rennsli frá bakka ofl.
Tækniæfingar og leikir JJJ
Þjálfari Akureyrarlaug: Hafdís Sigurðardóttir og Anna Fanney Stefánsdóttir.
Þjálfarar Glerárlaug: Dýrleif Skjóldal og Steinar Logi Rúnarsson.
Mánaðargjald: 5.000 kr.-
Höfrungar:
Framhald 8 - 10 ára
Tækni á öllum sundaðferðum og aukið sundþol. Stunga - snúningar - fjórsund.
Í þessum hóp öðlast börnin sína fyrstu keppnisreynslu utan félagsins.
Leikirnir gleymast ekki JJJ
Þjálfarar Akureyrarlaug: Ragnheiður Ásbjarnardóttir.
Þjálfarar Glerárlaug: Dýrleif Skjóldal og Hafdís Sigurðardóttir.
Mánaðargjald: 5.500 kr.-
Krossfiskar
Sérstök börn
Þessi hópur er fyrir fötluð börn og börn með sérþarfir. Það sem tekið verður fyrir miðast við getu hvers og eins, sem og
hópsins í heild.
Þjálfarar: Dýrleif Skjóldal, Hafdís Sigurðardóttir.
Mánaðargjald: 5.500 kr.-
Krókódílar
Eldri Krossfiskar
Þessi hópur æfir í Akureyrarlaug fjórum sinnum í viku.
Þjálfarar: Jón Heiðar Jónsson og Anna Fanney Stefánsdóttir.
Mánaðargjald: 6.500 kr.-
Framtíðarhópur
Hér er haldið áfram að fínpússa tækni, byrjað á þolæfingum og aðrar æfingar kynntar.
Þessi hópur tekur þátt í fjölmörgum mótum og stefna þessir krakkar helst á að ná lágmörkum fyrir Aldursflokkameistaramót Íslands sem haldið er á hverju sumri.
Þjálfari: Sigfríð Einarsdóttir
Mánaðargjald: 6.500 kr.-
Úrvalshópur og Afrekshópur:
Unglinga-og Afreksþjálfun.
Þetta eru úrvalshóparnir okkar og aðal keppnishóparnir. Í þessum
hópum eru alltaf næg verkefni, fjölmörg sundmót, æfingabúðir og annað skemmtilegt. Aðalmótin eru Meistaramót Sundsambands
Íslands og Bikarkeppnin. Í Afrekshópi eru meðal annarra nokkrir krakkar sem eru í landsliðshópum.
Við stefnum alltaf á að eignast fleiri fulltrúa í landsliðum.
Þjálfarar: Vladislav Mankhin og Svetlana Manikhina.
Mánaðargjald: 7.500 / 8.000 kr.-
Hákarlar
Lífstílshópur
Í þessum hóp er ungt fólk sem að vill synda sér til líkamsræktar, gamlir sundmenn eða sundmenn sem að vilja ekki keppa en hafa gaman af að synda.
Þjálfari: Karen Malmquist
Mánaðargjald: 7.500 kr.
Garpar:
Sundfólk 20 ára og eldri. Þessi hópur er opinn fyrir alla, byrjendur og lengra komna sem áhuga hafa á að stunda góða hreyfingu í skemmtilegum félagsskap.
Þjálfari: Gunnar Eiríksson
Mánaðargjald: 2.500 3x í viku og 2000 2x í viku.
Á næstunni
Heimsóknir
Samtals: 299165


