Flýtilyklar
Velkomin(n)!
Nýjustu fréttir
-
Foreldrafundur þriðjudaginn 21. september
Almennt - mánudagur 6.sep.10 19:07 - HA - Lestrar 8 - Athugasemdir (0)Foreldrafundur til kynningar á vetrarstarfi Óðins verður haldinn þriðjudaginn 21. september kl. 20:00 í Teríu Íþróttahallarinnar. Gengið er inn um aðalinngang að austan. Við hvetjum foreldra allara barna í félaginu til að mæta og kynna sér starfið. Farið verður yfir skipulag sundæfinga, fyrirhuguð mót og aðra viðburði í vetur, fjáraflanir og fleira.
-
Æfingar hafnar - Æfingatafla allra hópa
Almennt - mánudagur 6.sep.10 09:54 - HA - Lestrar 8 - Athugasemdir (0)Æfingar eru nú hafnar hjá öllum hópum og æfingatafla allra hópa er komin á vefinn. Æfingatímar eru nánast óbreyttir frá síðasta sundári að því frátöldu að tími Höfrungar í Glerárlaug færast frá mánudegi til þriðjudags. Formlegar þrekæfingar útihópa í Akureyrarlaug eru ekki hafnar en sundmenn eiga að taka létt útihlaup fyrir æfingu. Verið er að vinna verkefnaskrá fyrir alla hópa þar sem fram koma mót, fjáraflanir og aðrir viðburður í starfi félagsins og kemur hún á netið innan tíðar.
-
Drengur fæddur!
Almennt - mánudagur 6.sep.10 09:51 - HA - Lestrar 29 - Athugasemdir (6)Sigfríð Einarsdóttir, þjálfari framtíðarhóps, varð mamma aðfararnótt sunnudags þegar flottur skrákur kom í heiminn. Sigfríð mun engu að síður sjá um æfingarnar í vetur en fær smá afleysingu þessar fyrstu vikur. Sigfríð eru hér með sendar bestu hamingjuóskir frá öllum í Óðni!
-
Æfingagjöld 2010-2011
Almennt - föstudagur 20.ágú.10 14:44 - HA - Lestrar 412 - Athugasemdir (0)Æfingagjöld hjá Óðni hafa verið óbreytt frá haustinu 2008 en nú verður ekki lengur vikist undan að hækka þau aðeins. Hækkunin er að jafnaði á bilinu 5-6%, sem er langt undir öllum almennum verðhækkunum á síðustu tveimur árum. Áfram er Óðinn með ein lægstu æfingagjöld sambærilegra félaga á landinu.
-
Bryndís synti í undanúrslitum
Almennt - þriðjudagur 17.ágú.10 23:09 - HA - Lestrar 130 - Athugasemdir (3)Bryndís Rún keppti í dag í 50 m flugsundi á ÓL ungmenna í Singapore. Hún synti sig inn í undanúrslit á tímanum 28,60 og bætti sig síðan um 7 sekúndubrot í undanúrslitasundinu sjálfu og endaði í 13. sæti. Fínn árangur það. Nú á hún eftir 100 m flugsundið þann 19. ágúst.
-
Æfingar hefjast
Almennt - mánudagur 16.ágú.10 22:50 - HA - Lestrar 85 - Athugasemdir (0)Vonandi hafa allir hafi notið sumarsis og nú fer að styttast í að sundæfingar hefjist á nýjan leik. Æfingar afrekshóps byrja þriðjudaginn 17. ágúst kl. 17:00. Fyrir sundæfingar eiga ALLIR að vera búnir að taka létt hlaup í 20-30 mín (3-5 km) með teygjum á eftir. Á þessar æfingar eru boðaðir allir sem fóru á AMÍ í vor en síðan verða frekari hrókeringar á milli hópa þegar Vald yfirþjálfari kemur til landsins aðra viku í september. Aðrir hópar byrja um mánaðamótin og verður það auglýst betur þegar nær dregur.
-
Bryndís búin með fyrstu grein
Almennt - sunnudagur 15.ágú.10 10:04 - HA - Lestrar 115 - Athugasemdir (2)Bryndís Rún hefur lokið keppni í fyrstu grein sinni á Ólympíuleikum ungmenna í Singapore. Hún synti 200 m fjórsund á 2:28:10 og komst ekki áfram, enda nokkuð frá sínum besta tíma. Á morgun er 100 m skriðsund og síðan 50 m flugsund á þriðjudaginn en það er væntanlega hennar sterkasta grein. Á vef ÍSÍ eru daglega settar inn nýjar fréttir frá íslenska hópnum sem gaman er að lesa.
-
Dóra Sigga sigraði í þríþrautarkeppni
Almennt - sunnudagur 15.ágú.10 09:34 - HA - Lestrar 185 - Athugasemdir (2)Í gær fór fram árleg þríþrautarkeppni á Laugum í Reykjadal. Keppt er í svokallaðri Ólympískri þríþraut sem er 1.500 m sund, 40 km hjólreiðar og 10 km hlaup. Dóra Sigga sundkona í afrekshópi Óðins sigraði í kvennaflokki á tímanum 2:53,14, sem mun vera með betri tímum í 9 ára sögu þrautarinnar.
-
Hópaskipting í Glerárlaug
Almennt - miðvikudagur 11.ágú.10 15:09 - HA - Lestrar 112 - Athugasemdir (0)Í meðfylgjandi Excel-skjali má sjá nafnalista með hópaskiptingu í Glerárlaug sem Dilla hefur unnið. Æfingar hefjast um mánaðamótin og verða nánar auglýstar síðar. Hópaskipting Glerárlaug (Excel)
-
Ólympíufarar leggja í'ann
Almennt - sunnudagur 8.ágú.10 22:51 - HA - Lestrar 245 - Athugasemdir (3)Á morgun mánudag leggur íslenski hópurinn af stað til Singapore til þátttöku í fyrstu Ólympíuleikum ungmenna. Sex keppenur, allt sundmenn, keppa fyrir Íslands hönd og þar á meðal Bryndís Rún Hansen. Þá er Ásta Birgisdóttir flokkstjóri í ferðinni.
Á næstunni
Heimsóknir
Í dag: 8
Samtals: 299166
Samtals: 299166


