Gullmót KR 2026

Gullmót KR 2026

Árlegt Gullmót KR fór fram í Laugardalslaug dagana 13.–15. febrúar. Óðinn átti 40 keppendur á mótinu. Það var mikið um persónulega sigra, fjölmargir náðu lágmörkum á AMÍ og ljóst að Óðins hópurinn mun stækka enn frekar þar sem allir voru að bæta sína bestu tíma í lauginni.

Í fyrsta hluta mótsins er undankeppni fyrir SuperChallange sem er skemmtileg útsláttar keppni sem fer fram á laugardagskvöldinu þá eru ljósin dempuð, spiluð diskó tónlist og mikið ljósa show,  Átta hröðustu út hverjum aldursflokki ná inn í keppnina áttu við þau Jón Ingi, Björn Elvar og Hrafney.

 Eftir harða keppni nældi Jón Ingi í gull og Hrafney silfur í sínum aldursflokkum. 

Iðkendur okkar komu heim með 33 verðlaun í einstaklings greinum

þar af 11 gullverðlaun, 8 silfurverðlaun og 14 bronsverðlaun

Alexa Dís fékk brons í 200m skrið og 100m bringa

Alexander Reid fékk silfur í 400m fjór og 400m skrið

Ástrós Lea fékk gull í 100m skrið, 200m skrið og silfur í 200m fjór

Benedikt Már fékk gull í 200m bringu

Björn Elvar var með silfur í 200m skrið, 200m bak, brons í 100m skrið og 200m fjór

Bríet Laufey var með brons í 200m fjór

Eva Sóley var með silfur í 100m bringu

Hrafney var með gull í 100m bak, silfur í 100m skrið, 200, bak og 50m flug (superchallange) og brons í 200m fjór

Jón Ingi var með gull í 400m skrið, 100m bak, 100m bringu, 200m fjór og 50m flug (superchallange)

Lárus Daði var með brons í 50m bak og 50m bringu

Lovísa Austfjörð var með silfur í 200m fjór, brons í 50m bak og 100m bak

Rúnar Siththichai var með gull í 100m flug

Sunna Berglind var með brons í 50m bak

Þór Bjarnar var með borns í 100m bringu

Viktoría Rós var með gull í 100m bringu og 200m bringu.

Til hamingju sundmenn og þjálfarar með flottan hóp!