Falkenberg, Svíþjóð – Föstudaginn 8. maí 2025 lögðu fjórir sundkappar úr sundfélaginu Óðinn af stað í keppnisferð til Svíþjóðar, ásamt sínum aðstandendum og þjálfara. Ferðin byrjaði með flugi til Reykjavíkur og þaðan áfram til Keflavíkur, áður en þau fóru áleiðis til Köben og að lokum til Falkenberg, þar sem sundmótið fór fram.
Það voru þau Arndís, Kristín, Rúnar og Soffía sem voru að keppa í þessari sundkeppni. Það var gist á hóteli og komið seint á áfangastað um kvöldið.
Á föstudeginum var rólegur dagur sem nýttur var til að versla nesti fyrir keppnisdaginn og undirbúa sig fyrir mótið. Seinna um daginn var æfing á lauginni sem átti að keppa í daginn eftir. Þetta gaf keppendum tækifæri til að venjast aðstæðum og fá betri tilfinningu fyrir vatninu sem þeir myndu keppa í – þetta var innilaug sem var mjög heitt þar inni eða nánast eins og að vera í „gufubaði“ í samanburði við það sem þau eru vön hér á Akureyri.
Keppnin sjálf hófst á laugardagsmorgni með morgunmat kl. 7:45 og fyrsta upphitun áður en mótið hófst kl. 9. Sundmennirnir kepptu ýmist í fjórum eða fimm greinum, bæði fyrir og eftir hádegishlé og á öllum sviðum sýndu þau mikla framfarir. Allir keppendur bættu sig á einn eða annan hátt – hvort sem það var með því að bæta tímana sína, synda í nýrri grein eða takast á við öðruvísi keppnisaðstæður en við erum vön. Þetta var sannarlega tækifæri til að sýna hæfileika sína í nýju og krefjandi umhverfi.
Eftir mótið fór hópurinn saman út að borða með öðrum keppendum frá Íslandi. Ísland var með 13 keppendur í heildina og var samvera keppenda, aðstandenda og þjálfara einstaklega góð. Það var mikil samheldni í hópnum og öll upplifun þessarar ferðar var minnisverð.
Í millitíðinni var farið í stuttar skoðunarferðir um Falkenberg – fallegan bær í Svíþjóð þar sem margt var skoðað, verslað og mikið var hlegið. Bærinn er mjög vinalegt samfélag og það var mikið labbað um miðbæinn og í kring.
Ferðin endaði með heimsókn á sjáfardýrasafn í Köben á heimleið, þar sem hópurinn fékk tækifæri til að slaka á og njóta þessa loka áfanga í ferðalaginu. Seint á mánudagskvöld voru allir keppendur, þjálfarar og aðstandendur komnir aftur heim til Íslands – þreytir en mjög sáttir við ferðina og árangur hennar.
Þessi ferð verður án efa minnistæð fyrir alla þátttakendur – og hefur styrkt samband þeirra bæði sem keppendur og sem lið, sem og tengslin við Svíþjóð og alþjóðlega sundiðkun. Sundfólk Óðins hefur bæði eflt sig faglega og félagslega á þessari ferð, sem var mikilvægur áfangi í ferli þeirra.