Pakki án gistingar aðfararnótt mánudags á 26.500.-
Gisti- og fæðispakkar standa einnig dómurum til boða.
Athugið að einnig verður hægt að kaupa stakar máltíðir og miða á lokahóf á meðan á móti stendur. Stakar máltíðir kosta 2.000.- og miði á lokahófið kostar 7.800.-.
Skráningar í AMÍ pakka skulu berast Sundfélaginu Óðni í tölvupósti á netfangið odinn@odinn.is fyrir 13. júní. Skráningum skal skila á skráningarblaði sem hægt er að nálgast hér en þar þarf einnig að koma fram fjöldi bola í hverri stærð.
Vinsamlegast athugið að matar- og gistipassar verða afhentir frá 16:00 - 20:00 í Brekkuskóla fimmtudaginn 22. júní og þá aðeins gegn framvísun á staðfestingu á greiðslu (til dæmis útprentun úr heimabanka).