Aðalfundur Sundfélagsins Óðins

Aðalfundur Sundfélagsins fer fram þriðjudaginn 8. apríl á efri hæð Íþróttahallarinnar (Teríunni) kl. 20:00.

Á dagskrá fundarins eru venjubundin aðalfundarstörf s.s. skýrsla formanns, ársreikningur, kjör stjórnar og önnur mál.

Stjórn Óðins óskar eftir fulltrúum í stjórn félagsins. Fyrirspurnir, framboð og tilnefningar til stjórnarsetu skulu berast á netfangið formadur@odinn.is

Tillögur að lagabreytingum skulu að sama skapi berast á netfangið formadur@odinn.is fyrir 1. apríl. Þær tillögur sem berast verða birtar á heimasíðu félagsins fyrir aðalfund.

Stjórnin