Sprengimót Óðins verður haldið 15.-16. september næstkomandi í Sundlaug Akureyrar. Mótið er sprettsundsmót og opið fyrir öll félög á landinu. Boðið er upp á mat og gistingu í Brekkuskóla sem er við hliðina á sundlauginni.
Skipulag og greinaröðun.
Mótið er hugsað fyrir keppendur 11 ára og eldri. Veitt verða verðlaun í einstaklingsgreinum, í aldursflokkum 11-12 ára, 13-14 ára og 15 ára og eldri. Mótið byrjar kl. 10:00 (upphitun klst. fyrr) á laugardeginum og er í þremur hlutum.
Hluti: 1
Laugardagur fyrir hádegi - Byrjar kl 10:00 (Upphitun kl. 9:00)
Grein
1 Konur 50 Skriðsund
2 Karlar 50 Skriðsund
3 Konur 200 Baksund
4 Karlar 200 Baksund
5 Konur 100 Bringusund
6 Karlar 100 Bringusund
7 Konur 50 Flugsund
8 Karlar 50 Flugsund
9 Konur 200 Skriðsund
10 Karlar 200 Skriðsund
11 Konur 200 Bringusund Boðsund
12 Karlar 200 Bringusund Boðsund
Hluti: 2
Laugardagur eftir hádegi - Byrjar kl. 15:00 (Upphitun kl. 14)
Grein
13 Konur 100 Fjórsund
14 Karlar 100 Fjórsund
15 Konur 50 Bringusund
16 Karlar 50 Bringusund
17 Konur 100 Baksund
18 Karlar 100 Baksund
19 Konur 200 Flugsund Boðsund
20 Karlar 200 Flugsund Boðsund
Hluti: 3
Sunnudagur fyrir hádegi - Byrjar kl 10:00 (Upphitun kl. 9:00)
Grein
21 Konur 100 Skriðsund
22 Karlar 100 Skriðsund
23 Konur 200 Bringusund
24 Karlar 200 Bringusund
25 Konur 50 Baksund
26 Karlar 50 Baksund
27 Konur 100 Flugsund
28 Karlar 100 Flugsund
29 Konur 200 Fjórsund
30 Karlar 200 Fjórsund
31 Blandað 400 Skriðsund Boðsund (8x50m skriðsund, 4 konur, 4 karlar, röðun frjáls)
Skráningarfrestur er til 13. september en skráningum skal skilað á netfangið: unnurak@gmail.com
Skráningarformið (splash skrá) má finna hér (dropbox tengill)
Gisting, matur og skráningargjöld
Innheimt verða skráningargjöld, 450 kr. fyrir einstaklingsgreinar og 700 kr. fyrir boðsund.
Boðið verður upp á gistingu og mat; kvöldmat á föstudag, morgunmat, hádegismat og kvöldmat álaugardag og morgunmat og hádegismat á sunnudag. Verð fyrir gistingu og mat er 11.000 kr á mann. Upplýsingar um mat og gistingu sendist á odinn@odinn.is
Gjöld fyrir skráningu og gistingu leggist inn á reikning Óðins:
0566-26-80180, kt: 580180-0519