Fimm Akureyrarmet í 50 m laug voru slegin á Gullmóti KR um helgina.
Í flokki 13-14 ára voru það Birkir Leó Brynjarsson og Nanna Björk Barkardóttir en Bryndís Bolladóttir og Kristján Benedikt Sveinsson í flokki 12 ára og yngri.
Bikir Leó sló Akureryarmetið í 50 m skriðsundi (28.16), Nanna Björk í 50 m flugsundi (30.94), Kristján Benedikt í 50 m skriðsundi (32.48) og Bryndís í 50 m skriðsundi (32.38) og 100 m skriðsundi (1:10.53).