Þá er fyrsta hluta á IF lokið og gekk okkar fólki ágætlega.
Lilja Rún vann til þriggja bronsverðlauna í 100 br, 50 skr og 50 bak. Synti aðeins frá sínum besta árangri.
Tinna vann til silfurverðlauna í 50 bak og bætti sig í þeirri grein og síðan bronsverðlauna í 50 skrið.
Axel bætti sig vel í 50 m. skriðsundi.
Bergur bætti sig vel í 50 m. skriðsundi. Hann var síðan óheppinn að vera dæmdur ógildur í 100 bringu en þá grein hefði hann annars sigrað.
Breki synti aðeins frá sínum bestu tímum en hann keppti í 100 br. 50 skr og 50 bak.
Bjarki bætti sig mikið í 50 m skriðsundi og einnig í 50 m. baksundi.
Strákarnir unnu síðan til bronsverðlauna í boðsundinu.