Gullmót KR 2015 fer fram í Laugardalslaug 13-15. febrúar í 50 m braut. Á þetta mót fara sundmenn Óðins í Afrekshópi, Úrvalshópi, Framtíðarhópi. Mótið er opið öllum aldursflokkum þar sem keppt er i 78 greinum í 6 mótshlutum, auk KR Super Challenge á laugardagskvöldi, þar sem keppt er í 50 m skriðsundi.
Ferðatilhögun
Farið verður með rútu frá planinu sunnan við Íþróttahöllina stundvíslega kl. 9 að morgni föstudagsins 13. febrúar og til baka á sunnudag 15. febrúar að móti loknu um kl 18:00.
Gisting og matur er í Laugalækjarskóla rétt hjá sundlauginni.
Búnaður:
Sundföt, gleraugu, sundhetta
Handklæði 2-3
Skór til að vera í á bakkanum
Hlýir sokkar
Óðinsgalli, bolur
Vatnsbrúsi
Til gistingar í skóla:
Vindsæng/dýna
Sæng/svefnpoki
Koddi/lak
Náttföt
Tannbursti og tannkrem
Nesti - peningur:
Sundmenn þurfa að hafa með sér nesti fyrsta daginn en fá kvöldmat í skólanum strax fyrsta kvöldið. Þá getur verið gott að eiga eitthvað hollt og gott til að narta í yfir helgina, t.d. gróft kex og ávaxtasafa. Sælgæti og sætabrauð er stranglega bannað. Þá þurfa sundmenn að hafa pening meðferðis til að kaupa sér næringu áður en lagt verður af stað heim á sunnudag 2000 kr. Fararstjórar geta geymt pening. Stoppað verður á leiðinni og t.d. pantað pizzuhlaðborð fyrir alla sem vilja.
Fararstjórar:
1. Lísa Björk (Snævar Atli Afrekshópi) GSM 865 8953
2. Alda Björk Sigurðardóttir (Rakel Afrekshópi) GSM 861 4187
3. Ingibjörg Isaksen (Ólöf Kristín Úrvalshópi) GSM 896 4648
4. Baldur Finnsson (Katrín Magnea í Úrvalshópi) GSM 843 0321
Þjálfarar:
Ragnheiður Runólfsdóttir, Dýrleif Skjóldal.
Kostnaður:
Heildarkostnaður á mann er 18.000 þúsund kr. Upp í það getur hver og einn nýtt það sem hann kann að eiga úr einstaklingsfjáröflunum. Upplýsingar um inneign gefur fjáröflunarnefnd sundfélagsins,fjaroflun@odinn.is. Leggist inn á reikning Óðins 0566-26-80180 kt. 580180-0519 fyrir brottför.
Sundurliðun kostnaðar pr. sundmann:
Matur og gisting (keypt af KR) 10.500
Rúta 7000
Bakkanesti 1000
Þjálfarar og fararstjórar 3000
Stungugjöld 3000
Heildarkostnaður 24.500
Mótið er niðurgreitt um 6500 kr. Kostnaður keppanda er því 18.000.
Mikilvægt:
Þeir sem ekki ætla að nýta sér rútuna þurfa að koma upplýsingum um það til gjaldkera fyrir föstudaginn 6. febrúar að öðrum kosti þarf að greiða fullt gjald. Þeir sem fara hvoruga leið með rútunni eru undanþegnir rútugjaldinu 7000 kr og greiða þeir því 8500 kr.
Ef keppendur en eru algjörlega á eigin vegum, þ.e. ætla ekki að gista og borða í skólanum með krökkunum þá þarf einnig að gefa upplýsingar um það fyrir föstudaginn 6. febrúar þar sem við pöntun þá. odinn@odinn.is.
Áríðandi:
Ef barn er með fæðuofnæmi, annarskonar ofnæmi eða er á lyfjum er mikilvægt að foreldrar setji sig í samband við fararstjóra.
Fylgist áfram með hér á síðunni því nánari upplýsingar koma inn.