Kæru sundmenn og foreldrar! Uppskeruhátíð Sundfélagsins Óðins verður haldin í sal
Brekkuskóla fimmtudaginn 12. janúar kl. 19:30. Við leggjum áherslu á að
uppskeruhátíð er fyrir alla sundmenn í Óðni og fjölskyldur þeirra – allt frá
sundskóla og uppúr.
Við höfum þetta einfalt. Það kostar að sjálfsögðu ekkert en allir mæta með einn léttan
rétt með sér á hlaðborð (t.d. köku, heitan rétt eða kex og osta). Drykkir verða
á staðnum.
Hvað gerum við á uppskeruhátíð?
Uppskeruhátíð er skemmtileg samverustund þar sem við njótum saman góðra
veitinga, farið verður yfir árangur liðins árs og veittar viðurkenningar til
sundmanna í eldri hópum. Þarna verður einnig tilkynnt um val á sundmanni
Akureyrar 2011.
Fjölmennum og eigum saman skemmtilega stund.
Stjórn Óðins.