Katrín Birta Birkisdóttir sló á árinu 2024 Akureyrarmet í 100 og 200 metra flugsundi meyja 12 ára og yngri. Hún gerði sér lítið fyrir og sló metið í 100 metrum bæði í 25 metra og 50 metra laug.
Metið í 100 metra flugsundi í 50 m laug sló Katrín Birta á Gullmóti KR í Reykjavík þann 10. febrúar er hún synti á tímanum 1:25.69.
Metið í 100 metra flugsundi í 25 m laug sló hún á Aldursflokkameistaramóti Íslands í Reykjanesbæ þann 29. júní er hún synti á tímanum 1:17.59. Þar með sló hún met Halldóru Sigríðar Halldórsdóttur frá árinu 2006 sem var 1:18.56.
Metið í 200 metra flugsundi í 25 metra laug sló Katrín Birta tvívegis á árinu 2024. Í fyrra skiptið sló hún metið á Sprengimóti Óðins á Akureyri þann 14. september er hún synti á tímanum 3:00.15. Þar með sló hún met Nönnu Bjarkar Barkardóttur frá árinu 2010 sem var 3:11.29. Katrín Birta sló svo eigið met á CUBE-móti SH í Hafnarfirði þann 19. október er hún synti á tímanum 2:51.15.
Sundfélagið Óðinn óskar Katrínu Birtu innilega til hamingju með Akureyrarmetin.