Fréttir

Jafnréttisstefna Óðins

Samkvæmt nýsamþykktri jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar ber öllum félögum sem hafa fasta styrktarsamninga við Akureyrarbæ að gera jafnréttisáætlun í samræmi við jafnréttislög. Undir þetta heyra öll íþróttafélög bæjarins. Að sama skapi gerir ÍSÍ þá kröfu að þau íþróttafélög sem hljóta gæðaviðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ starfi eftir virkri jafnréttisáætlun, en Sundfélagið Óðinn hlaut slíka viðurkenningu árið 2006. Af þessu má því ljóst vera að það er löngu orðið tímabært að okkar ágæta Sundfélag samþykki stefnu sem taki mið að því að jafnréttis milli kynja sé gætt hvívetna í daglegu starfi félagsins.

Dilla heiðruð

Dilla fékk í dag samfélagsverðlaunin Frá kynslóð til kynslóðar sem veitt eru af Fréttablaðinu. Til hamingju, Dilla, fyrir þessa verðskulduðu viðurkenningu á þínu starfi. Takk fyrir okkur!

Aðalfundur Óðins

Aðalfundur Sundfélagsins Óðins fer fram 6. apríl nk. kl. 19:45 í sal Brekkuskóla. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagið býður upp á veitingar. Rétt er að tilkynna að tveir núverandi stjórnarmeðlimir munu ekki gefa kost á sér áfram, auk þess sem formaður mun stíga niður. Framboð til stjórnar skulu berast á formadur@odinn.is fyrir 4. apríl. Stjórn óskar einnig eftir aðilum í fjáröflunarnefnd félagsins sem gegnir stóru hlutverki í starfi þess. Fyrirspurnir og framboð berist til formanns fyrir 4. apríl.

Páskamót Óðins

Þá líður að páskum og í ár er því óvenju stutt á milli gullmóts og páskamóts.

Akureyrarlaug lokuð mánudag 7. mars

Sundlaug Akureyrar verður lokuð mánudaginn 7. mars nk. vegna viðhalds. Af þessum sökum falla allar æfingar Óðins í lauginni niður þann daginn.

Fjarvera yfirþjálfara

Ragga yfirþjálfari hefur verið fjarverandi undanfarna daga og mun verða eitthvað áfram vegna persónulegra mála. Þetta hefur haft, og mun hafa áfram, áhrif á æfingar að einhverju leyti.Félagið gerir sitt best til að leysa úr því sem upp kann að koma en þó gæti svo farið að einhverjar æfingar féllu niður.

Engin laugardagsæfing

Engin æfing verður hjá Úrvals-og Afrekshópum í fyrramálið, laugardag.

RIG og Gullmót KR

Nú er hafið 50 m tímabilið 2016. Tímabilið hjá sundfólkinu okkar fer mjög vel af stað. Liðið okkar búið að taka þátt í tveimur stórmótum.

Fréttir af Malmö ferðalöngum.

Nú er Malmöferðin yfirstaðin og held ég að megi segja að hún hafi gengið vel í öllum megin atriðum.

Æfing hjá höfrungum í Akureyrarlaug fellur niður í dag

Æfing hjá höfrungum í Akureyrarlaug fellur niður í dag, föstudaginn 12. febrúar.