05.08.2011
Næsta afgreiðsla á WC pappír er á miðvikudag í næstu viku, 10. ágúst, milli 17:00 og 17:30. Mjög áríðandi er að senda kvittun fyrir greiðslu á netfangið fjaroflun@odinn.is fyrir hádegi á miðvikudag.
Fjáröflunarnefndin
03.08.2011
Frábær árangur Óðins krakka undir merkjum IBA á landsmóti UMFÍ á Egilsstöðum um síðustu helgi.
25.07.2011
14. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldíð á Egilsstöðum daganna 29- 31 júlí.
12.07.2011
Keppni er nú lokið á Norska meistaramótinu í 50 m laug þar sem Bryndís Rún Hansen var meðal keppenda. Hún stóð sig vel eins og við var að búast og raðaði inn verðlaunum.
03.07.2011
Okkar fólki á alþjóðaleikum Special Olympics í Aþenu hefur gengið með miklum ágætum og kemur það heim með mörg verðlaun í farteskinu. Auk Jóns Gunnars Halldórssonar og Elísabetar Þ. Hrafnsdóttur, sem keppa á leikunum, er Dýrleif Skjóldal fararstjóri íslenska sundliðsins. Leikunum lýkur á morgun.
27.06.2011
Aldursflokkameistaramóti Íslands lauk á Akureyri í gær. Við í Óðni getum verið stolt af hvernig til tókst, enda erum við svo sem engir nýgræðingar í að halda AMÍ. Hér að neðan er samantekt fyrir mótið og tenglar á myndir, vídeó, úrslit og fleira skemmtilegt.
27.06.2011
Óðinn lauk keppni í 3. sæti á AMI 2011. Þetta er jöfnun á besta árangri félagsins til þessa en einu sinni áður hefur félagið náð 3. sætinu. Þrettán félög kepptu á mótinu.
26.06.2011
Inga Elín Cryer úr Sundfélagi Akraness setti nú rétt í þessu nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 200 m flugsundi kvenna á AMÍ. Inga Elín synti á tímanum 2:17,97.
25.06.2011
Fyrstu gullverðlaun Óðins komu í hús í dag þegar Erla Hrönn Unnsteinsdóttir varð aldursflokkameistari í 200 m baksundi 17-18 ára. Að lokinni keppni dagsins er Óðinn í 4. sæti í stigakeppninni.
24.06.2011
AMÍ gengur með miklum ágætum og að loknum öðrum keppnisdegi er Óðinn í 3. sæti stigakeppninnar með 231,5 stig. Ágæt afrek unnust í dag og slatti af verðlaunum komu í hús.